Yanit kom fyrst í mark í 100 metra grindahlaupi

Nevin Yanit frá Tyrklandi sigraði í 100 metra grindahlaupi kvenna á EM í frjálsíþróttum en ... stækka

Nevin Yanit frá Tyrklandi sigraði í 100 metra grindahlaupi kvenna á EM í frjálsíþróttum en þetta er í fyrsta sinn sem keppandi frá Tyrklandi sigrar í þessari grein. Reuters

Nevin Yanit frá Tyrklandi sigraði í 100 metra grindahlaupi kvenna á EM í frjálsíþróttum en þetta er í fyrsta sinn sem keppandi frá Tyrklandi sigrar í þessari grein.

Hin 24 ára gamla Yanit kom í mark á 12,63 sekúndum sem er tyrkneskt met. „Ég trúi þessu varla, herbergisnúmerið mitt á hótelinu er 1263 og símanúmerið mitt endar á þessum fjórum tölustöfum,“  sagði Yanit eftir hlaupið.
Derval O’Rourke frá Írlandi varð önnur á írsku meti, 12,65 sek., og Carolyn Nytra frá Þýskalandi varð þriðja á 12,68 sek., en hún var talin sigurstranglegust fyrir keppnina.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar


finnur.is