Ingibjörg í undanúrslit í Singapúr og setti met

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir. stækka

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir.

Ingibjörg Kristín Jónsdóttir komst í dag í undanúrslitin í 50 metra skriðsundi á Ólympíuleikum ungmenna í Singapúr og setti um leið nýtt stúlknamet.

Ingibjörg hafnaði í 9. sæti í greininni á 26,47 sekúndum. Hún átti sjálf fyrra metið sem var 26,60 sekúndur.

Karen Sif Vilhjálmsdóttir tók einnig þátt í 50 metra skriðsundinu og hafnaði í 25. sæti af 62 keppendum á 27,55 sekúndum.

Bryndís Rún Hansen keppti í 100 metra flugsundi og synti á 1:05,56 mínútu og endaði í 26. sæti af 32 keppendum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar


finnur.is