Arnar Már: Var bara að reima af mér skóna

Arnar Már er hér til varnar gegn Guðmundi Steinarssyni í leiknum í kvöld. stækka

Arnar Már er hér til varnar gegn Guðmundi Steinarssyni í leiknum í kvöld. Ljósmynd/Víkurfréttir

„Maður hefði ekkert verið ósáttur við stig fyrir fram en mér fannst við alveg geta náð í þrjú stig. Þegar upp er staðið er maður samt alveg sáttur við stig,“ sagði Arnar Már Björgvinsson sem skoraði fyrra mark Stjörnunnar í 2:2 jafnteflinu í Keflavík í Pepsideildinni í kvöld.

Arnar viðurkenndi að Keflavíkurliðið hefði verið ívið sterkara í leiknum og meira með boltann, enda hafi það verið samkvæmt leikaðferð Stjörnumanna.

„Við ætluðum náttúrulega bara að verjast aftarlega og sækja svo hratt þegar færi gæfist og mér fannst það ganga ágætlega þó að þeir fengju reyndar nokkur góð færi. Við kláruðum þetta ágætlega, náðum að koma til baka og jafna, og sigurinn hefði getað dottið hvoru megin sem var,“ sagði Arnar Már sem var kominn af velli þegar Stjarnan jafnaði með afar skrautlegum hætti seint í leiknum. Halldór Orri Björnsson skoraði þá með fyrirgjöf af löngu færi.

„Ég reyndar sá ekki markið, var bara kominn á bekkinn að reima af mér skóna, en þetta var virkilega sætt,“ sagði Arnar Már.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Ólympíuleikar — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 29. apríl

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is