Íþróttir
| Morgunblaðið
| 23.8.2010
| 7:25
ÍR vann alla titla ársins í frjálsum
ÍR-ingar urðu um helgina bikarmeistarar í frjálsum íþróttum 16 ára og yngri og kórónuðu þar með ótrúlegt ár. Félagið hefur einfaldlega unnið alla titla sem í boði eru í öllum aldursflokkum, bæði innan- og utanhúss og það hefur ekkert félag afrekað áður.
Þráinn Hafsteinsson, yfirþjálfari hjá ÍR, neitar því ekki að í upphafi árs hafi hann talið slíkt afrek vera mögulegt. „Við fórum nærri þessu í fyrra því þá urðum við í öðru sæti í einu þessara móta en unnum öll hin. Það sem skýrir þetta fyrst og fremst er rosalega öflugt yngri flokkastarf í tíu ár."
Nánar er rætt við Þráin í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






