Norðurlandameistari í stangarstökki

Hulda Þorsteinsdóttir varð Norðurlandameistari í stangarstökki. stækka

Hulda Þorsteinsdóttir varð Norðurlandameistari í stangarstökki. mbl.is/Skapti

Hulda Þorsteinsdóttir varð í dag Norðurlandameistari í stangarstökki kvenna, 19 ára og yngri, þegar hún stökk yfir 3,88 metra. Þá varð Stefanía Valdimarsdóttur Norðurlandameistari í 400 metra grindahlaupi og Arna Stefanía Guðmundsdóttir sigraði í 400 metra hlaupi en keppt er á Akureyri.

Hulda átti í harðri keppni við Söru Eriksson frá Svíþjóð í stangarstökkinu en tryggði sér sigur með því að stökkva yfir  3,88 metra í 2. tilraun. Sara þurfti 3 tilraunir til þess. 

Stefanía hljóp 400 metra grindahlaup á 62,65 sekúndum. 

Dagur Fannar Magnússon varð 7. sæti í sleggjukasti þegar hann kastaði 44,79 metra. Dóróthea Jóhannesdóttir varð 8. í 100 metra hlaupi á 12,63 sekúndum sem er um 20/100 sekúndum frá hennar besta en vindur var rétt undir löglegum mörkum.

Kolbeinn Gunnarsson varð einnig 8. sæti í  100 metra hlaupi en vindurinn var langt yfir löglegum mörkum 

Stefanía Valdimarsdóttir kemur í fyrst í mark í 400 m grindahlaupi.

Stefanía Valdimarsdóttir kemur í fyrst í mark í 400 m grindahlaupi. mbl.is/Skapti

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í gær


finnur.is