Íþróttir
| mbl
| 2.9.2010
| 7:45
Óvæntur sigur Angóla og Þjóðverjar eru úr leik
Þjóðverjar eru úr leik á heimsmeistaramótinu í körfuknattleik eftir 92:88 tap gegn Afríkumeistaraliði Angóla. Sigur Angóla kom verulega á óvart en úrslitin réðust í framlengingu.
Þjóðverjar léku m.a. á Ólympíuleikunum í Peking fyrir tveimur árum en liðið saknar Dirk Nowitzki leikmanns Dallas Mavericks sem er ekki í liðinu.
Olimpo Cipriano skoraði 30 stig fyrir Angóla og Joaquim Gomez skoraði 16 og tók 14 fráköst. Angóla hitti úr 18 af alls 40 þriggja stiga skotum sínum.
Úrslit gærdagsins:
A-riðill:
Serbía – Ástralía 94:79
Þýskaland – Angóla 88:92
Argentína – Jórdanía 88:79
B-riðill:
Króatía – Túnis 84:64
Íran – Bandaríkin 51:88
Brasilía – Slóvenía 77:80
Kína – Rússland 80:89
Fílabeinsströndin – Grikkland 60:97
Tyrkland – Púertó Ríkó 79:77
D-riðill:
Kanada – Nýja-Sjáland 61:71
Líbanon – Spánn 57:91
Litháen – Frakkland 69:55
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






