West í raðir Boston á ný

Derrick Rose leikmaður Chicago er með boltann og Delonte West er til varnar. stækka

Derrick Rose leikmaður Chicago er með boltann og Delonte West er til varnar. Reuters

Bakvörðurinn Delonte West hefur samið við Boston Celtics í NBA deildinni í körfuknattleik. West lék með Cleveland Cavaliers á síðustu leiktíð en hann þarf að taka út 10 leikja keppnisbann í upphafi næstu leiktíðar.

Þetta er í annað sinn sem West gengur í raðir Boston en hann lék með liðinu í þrjú ár áður en hann fór til Seattle í leikmannaskiptum þar sem að Ray Allen kom m.a. til Boston. West hefur skorað 10 stig að meðaltali í leik á ferlinum.

Hann var dæmdur fyrir ólöglegan vopnaburð í Maryland og þarf að taka út skilorðsbundna refsingu sem felur m.a. annars í sér að hann getur ekki tekið þátt í fyrstu 10 leikjum Boston liðsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is