Íþróttir
| mbl
| 3.9.2010
| 7:55
Federer komst auðveldega í þriðju umferð
Roger Federer frá Sviss komst auðveldlega í þriðju umferð opna bandaríska meistaramótsins í tennis í gær með því að leggja Þjóðverjann Andreas Beck 6:3, 6:4, 6:3.
Federer var ekki með nein „sirkustilþrif“ líkt og hann gerði í fyrstu umferð gegn Argentínumanninum Brian Dabul. „Þetta er fullkomin byrjun á mótinu,“ sagði Federer eftir sigurinn í gær en hann hefur fimm sinnum sigrað á þessu móti. Federer mætir Paul-Henri Mathieu í næstu umferð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






