Íþróttir
| mbl
| 3.9.2010
| 10:22
Fimm keppa á Norðurlandamóti í frjálsum íþróttum
Fimm Íslendingar verða á meðal keppenda á Norðurlandamóti 22 ára og yngri í fjálsum íþróttum sem fram fer í Söderhamn í Svíþjóð um helgina og en mótið hefst á morgun.
Átta íslenskir frjálsíþróttamenn náðu lágmörkum á móti en fimm þeirra taka þátt í mótinu. Þeir eru:
Fjóla Signý Hannesdóttir HSK; keppir í 400m grindarhlaupi og hástökki
Örn Davíðsson FH; keppir í spjótkasti
Bjartmar Örnuson UFA; keppir í 800m hlaupi
Þorsteinn Ingvarsson HSÞ; keppir í langstökki
Guðmundur Sverrisson ÍR; hann keppir í spjótkasti.
Fararstjóri og þjálfari er Pétur Guðmundsson.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






