Cibulkova í átta manna úrslit

Dominika Cibulkova. stækka

Dominika Cibulkova. Reuters

Dominika Cibulkova frá Slóvakíu tryggði sér í dag sæti í átta manna úrslitum á opna bandaríska meistaramótinu í tennis þegar hún bar sigurorð af Rússanum Svetlana Kuznetsova í tveimur settum, 7:5 og 7:6.

Cibulkova mætir hinni dönsku Caroline Wozniaki eða Mariu Sharapovu frá Rússlandi í átta manna úrslitunum.

Í karlaflokki varð Gael Monfils fyrsti Frakkinn í áratug sem kemst í átta manna úrslit en hann hafði betur gegn landa sínum, Richard Gasquet, í þremur settum, 6:4, 7:5 og 7:5. Monfils mætir Novak Djolovic eða Mardy Fish í átta manna úrslitum.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is