Flottur endir á fínu tímabili

Arna Stefanía Guðmundsdóttir. stækka

Arna Stefanía Guðmundsdóttir. mbl.is/hag

„Þetta er búin að vera glæsileg helgi hjá krökkunum. Við erum með þrjár stelpur sem fara yfir 5.000 stig í sjöþrautinni og það hefur ekki gerst áður hjá Íslendingum. Arna Stefanía er reyndar í flokki 16 ára og yngri, en hún setti Íslandsmet í sínum flokki, fékk 5.029 stig og bætti meyjamet Helgu Margrétar Þorsteinsdóttur frá 2006, en menn héldu þá að það yrði langlíft. Þetta er flottur endir á fínu tímabili hjá þessum krökkum,“ sagði Þráinn Hafsteinsson frjálsíþróttaþjálfari í samtali við Morgunblaði í gær.

Íslendingar sendu fjóra keppendur á sænska meistaramótið í fjölþraut og komu þeir heim með eitt gull, tvö silfur og eitt brons sem verður að teljast glæsilegur árangur.

Arna Stefanía sigraði í sínum flokki, Kristín Birna Ólafsdóttir, sem er í ÍR líkt og Arna Stefanía, varð í öðru sæti í kvennaflokki með 5.363 stig, sem er hennar næstbesti árangur og annar besti árangur í sjöþraut í ár. Sveinbjörg Zóphoníasardóttir, USÚ, varð síðan í þriðja sæti með 5.044 stig sem er hennar næstbesti árangur. Loks fékk Ingi Rúnar Kristinsson úr Breiðabliki silfur í flokki 17 ára er hann fékk um 6.100 stig en heildarúrslit lágu ekki fyrir í gærkvöld.

Nánar er fjallað um íslensku keppendurna í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is