HM í körfubolta: Tyrkir unnu Frakka auðveldlega

Hedo Türkoglu er aðalstjarna Tyrkja en hann leikur í NBA deildinni. stækka

Hedo Türkoglu er aðalstjarna Tyrkja en hann leikur í NBA deildinni. Reuters

Það var viss stemning á leik heimamanna í Tyrklandi þegar þeir tóku á móti Frökkum í 16-liða úrslitum HM í körfuknattleik. Á fremst bekk sátu landsliðsmenn Tyrklands í knattspyrnu, en þeir búa sig nú undir leik við Belga í undankeppni EM á miðvikudaginn.

Tyrkir og Frakkar hafa mæst fjórum sinnum í fótboltanum og alltaf hafa Frakkar unnið. Þeir höfðu líka nýlega betur í keppninni um að fá að halda EM í fótbolta 2016 þannig að Guus Hiddink, landsliðsþjálfari Tyrkja, ákvað að fara með lið sitt á körfuboltaleik enda næsta víst að þar myndu Tyrkir ekki þurfa að lúta í lægra haldi.

Það kom líka á daginn því Tyrkir voru sterka liðið alveg frá upphafi og tryggðu sér öruggan sigur, 95:77, og sæti í átta liða úrslitin þar sem þeir mæta Slóveníu.

Fótboltakapparnir fóru því hamingjusamir heim og aðeins með sýnishorn af því hvernig það er að leggja Frakka. Tuncay Sanli, leikmaður Stoke á Englandi var ánægður. „Ég hringdi í Türkoglu fyrir leikinn og bað hann um að gefa mér keppnisbúninginn sinn eftir leik. Við erum allir stoltir af körfuboltaliðinu okkar og stemningin hér í íþróttahöllinni er engu lík,“ sagði Sanli.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is