Íþróttir
| mbl
| 6.9.2010
| 22:37
Setti Íslandsmet í þríþraut
Steinn Jóhannsson setti í gær Íslandsmet í þríþraut, eða járnkarli eins og íþróttagreinin er stundum nefnd. Steinn tók þátt í keppni í Köln í Þýskalandi og lauk þrautinni á 9 stundum, 24 mínútum og 46 sekúndum.
Fram kemur á vefnum hlaup.is, að Steinn synti 1,8 km á 57:16 mínútum, hjólaði 180 km á 5 stundum, 7, 35 mínútum og hljóp síðan maraþonhlaup á 3 stundum, 12, 53 mínútum.
Steinn varð í 15 sæti yfir heildina en í 3 sæti í sínum aldursflokki.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






