Íþróttir
| mbl
| 7.9.2010
| 9:57
| Uppfært
22:44
Ásdís með 30 bestu í heiminum
Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari úr Ármanni og Íslandsmethafi í greininni, er með 22. besta árangur í sinni grein í heiminum í dag, samkvæmt nýrri afreksskrá þessa árs sem Alþjóða frjálsíþróttasambandið (IAAF) hefur gefið út. Hún hefur kastað lengst 60,72 m á árinu á Demantamótinu í Gateshead í Englandi 10. júlí.
Ásdís á 14. besta árangur Evrópubúa í greininni, samkvæmt sama afrekslista.
Alls eru 29 spjótkastarar sem náðu að kasta 60 m eða lengra á árinu, en lengst allra kastaði Maria Abakumova frá Rússlandi 68,89 m, en það var í Doha 14. maí á Demantamótinu IAAF.
Íslandsmet Ásdísar frá því á síðasta ári er 61,37 m. Hún er eini íslenski frjálsíþróttamaðurinn sem er á meðal 30 bestu sinni grein í heiminum í ár.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






