Íþróttir
| mbl
| 7.9.2010
| 10:18
Federer öruggur áfram
Roger Federer frá Sviss tryggði sér í gærkvöldi síðasta sætið sem í boði var í átta manna úrslitum Opna bandaríska meistaramótsins í tennis. Federe vann Austurríkismanninn, Jürgen Melzer, í þremur settum og mætir Robin Söderling í átta manna úrslitum.
Federer stefnir á að vinna mótið í sjötta sinn. Söderling vann Spánverjann Albert Montanes í fjögurra setta leik í 16-manna úrslitum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






