Higgins sýknaður en fer samt í bann
John Higgins, þrefaldur heimsmeistari í snóker, hefur verið hreinsaður af ásökunum um að hafa tekið þátt í hagræða úrslitum leikja. Hann mun eigi að síður fara í sex mánaða keppnisbann og greiða 75.000 pund í sekt.
Bannið og sektina fær Higgins fyrir að hafa ekki upplýst strax um að sér hafi verið boðnir peningar fyrir að hagræða úrslitum leikja. Higgins ætlar að una niðurstöðu dómsins.
Málið komst í hámæli á fyrri hluta ársins eftir upptaka birtist þar sem Higgins og umboðsmaður hans ræða við blaðamann í dulargervi í Kiev í Úkraínu þegar Higgins var þar við keppni. Blaðamaðurinn var í raun útsendari frá enska dagblaðinu News of the World. Blaðið hélt því fram að Higgins hafi þegar sem svarar til 261.000 punda fyrir að hagræða úrslitum leikja sinna.
Higgins og umboðsmaður hans segja engan fót vera fyrir frásögn blaðsins og vísa til þess að hann hafi ekki tapað leik í keppninni í Kiev.






