Ásdís heldur sig í hópi þeirra bestu
Ásdís Hjálmsdóttir, Íslandsmethafi í spjótkasti kvenna úr Ármanni, er sá íslenskur frjálsíþróttamaður sem náð hefur lengst á þessu ári, ef tekið er mið af afrekslista Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, IAAF, fyrir einstakar greinar frjálsíþrótta. Ásdís á 22. besta afreks í spjótkasti kvenna í heiminum í ár. Ef eingöngu er litið á Evrópulistann þá situr Ásdís í 14. sæti.
Aðeins þrír Íslendingar eru á meðal 100 bestu í heiminum í sínum greinum á þessu ári. Auk Ásdísar þá er Helga Margrét Þorsteinsdóttir, Ármanni, í 54. sæti í sjöþraut kvenna og í 39. sæti á Evrópulistanum með 5.757 stig. Hinn sem nær inn á „topp 100“ er kúluvarparinn Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH. Hann hefur varpað kúlunni lengst 19,37 metra í ár sem 64. besta afrekið í kúluvarpi karla á árinu og það 38. besta sem Evrópubúi hefur náð.
Fjallað er um stöðu Íslendinga á afrekslista Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins, IAAF í fjögurra síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






