Federer með gott tak á Söderling

Roger Federer. stækka

Roger Federer. Reuters

Roger Federer sýndi styrk sinn gegn Svíanum Robin Söderling í gær þegar þeir áttust við í átta manna úrslitum á opna bandaríska meistaramótinu í tennis. Federer skoraði 18 sinnum beint úr uppgjöf og hann sigraði 6:4, 6:4 og 7:5.  Federer hefur sigrað á 16 stórmótum á ferlinum og er hann til alls líklegur í New York.

Serbinn Novak Djokovic verður mótherji Federer í undanúrslitum. Mikill vindur setti svip sinn á leik þeirra Federer og Söderling og átti sá sænski í töluverðum vandræðum með að átta sig á aðstæðum.    

Þetta er í annað sinn á tveimur árum þar sem að Federer sigrar Söderling í undanúrslitum á opna bandaríska meistaramótinu. Söderling hefur aldrei náð að komast í undanúrslit á þessu móti. Söderling hefuyr reyndar aðeins unnið Federer einu sinni en það var í átta manna úrslitum á opna franska meistaramótinu í fyrra. Fyrir þann leik hafði Federer unnið alla 10 leiki þeirra á milli.

Robin Söderling.

Robin Söderling. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is