Íþróttir
| mbl
| 9.9.2010
| 13:43
Karl ráðinn þjálfari landsliðanna í strandblaki
Strandblaksvöllurinn í Mónakó.
Landsliðin í strandblaki taka þátt í úrtökumóti á Kanaríeyjum fyrir Ólympíuleikanna 2012 dagana 15.-17. október en það er í fyrsta skipti sem BLÍ tekur þátt í slíku móti. Átta leikmenn hafa verið valdir í karlaflokki og 8 leikmenn í kvennaflokki. Alls fara fjórir leikmenn úr hvorum flokki á úrtökumótið þar sem liðin keppa við Svía, Ítala og Spánverja.
Leikmenn kvennaliðsins eru:
Fríða Sigurðardóttir
Birna Baldursdóttir
Lilja Jónsdóttir
Laufey Björk Sigmundsdóttir
Karen Björg Gunnarsdóttir
Fjóla Rut Svavarsdóttir
Hjördís Eiríksdóttir
Þórey Haraldsdóttir
Leikmenn í 8 manna hópi karla eru:
Emil Gunnarsson
Eiríkur Eiríksson
Einar Sigurðsson
Birgir Már Vigfússon
Guðmundur P. Guðmundsson
Róbert Karl Hlöðversson
Orri Þór Jónsson
Valgeir Valgeirsson
Karl Sigurðsson verður þjálfari beggja liða og er ráðinn fram yfir smáþjóðaleikana 2011 í Liechtenstein.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






