Wozniacki í undanúrslit

Caroline Wozniacki hallar sér á móti vindinum í nótt. stækka

Caroline Wozniacki hallar sér á móti vindinum í nótt. Reuters

Danska tenniskonan Caroline Wozniacki tryggði sér í nótt sæti í undanúrslitum Opna bandaríska meistaramótsins í tennis þegar hún sigraði Dominiku Cibulkovu frá Tékklandi 6-2 og 7-5 í fjórðungsúrslitum í nótt. Mun Wozniacki, sem er stigahæsti keppandinn á mótinu, mæta Veru Zvonarevu í undanúrslitum.

Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Venus Williams frá Bandaríkjunum og  Kim Clijsters frá Belgíu, sem sigraði á mótinu í fyrra.

Mjög hvasst var þegar Wozniacki og Cibulkova áttust við. „Þetta var eins og að spila í fellibyl," sagði Wozniacki á eftir.   

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is