Ragna áfram í Belgíu

Ragna Ingólfsdóttir. stækka

Ragna Ingólfsdóttir. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ragna Ingólfsdóttir er komin í 16 manna úrslitin í einliðaleik kvenna á alþjóðlega Yonex badmintonmótinu sem nú stendur yfir í Belgíu eftir sigur á Sarah Thomas frá Wales.

Ragna vann leikinn mjög örugglega, 21:11 og 21:11. Sarah Thomas er í 172. sæti heimslistans en Ragna er í 119. sætinu.

Í 16 manna úrslitunum síðdegis í dag fær Ragna heldur betur erfiðan andstæðing. Það er sterkasti keppandinn á mótinu, Juliane Schenk frá Þýskalandi, en hún er í 11. sæti á heimslistanum og sú fjórða besta í Evrópu samkvæmt þeim lista.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is