Íþróttir
| Morgunblaðið
| 10.9.2010
| 8:32
Þormóður tapaði fyrir silfurhafanum frá ÓL
Þormóður Jónsson tapaði fyrir Abdullo Tangriev frá Úsbekistan í 1. umferð í +100 kg. flokki á heimsmeistaramótinu í júdó sem hófst í Tókýó í Japan í gær og féll þar með úr leik en hann keppir síðar í opnum flokki á mótinu.
Þormóður tapaði fyrir sama júdómanni á heimsmeistaramótinu á síðasta ári sem fram fór Rotterdam í Hollandi en Tangriev vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking fyrir tveimur árum.
Fjórir íslenskir júdómenn taka þátt í mótinu en auk Þormóðs eru það Hermann Unnarsson sem keppir í -81 kg. flokki og þeir Kristján Jónsson og Eyjólfur Eyfells keppa í -73 kg. flokki. Þjálfari júdómannanna í ferðinni er Bjarni Friðriksson, bronsverðlaunahafi á Ólympíuleikunum í Los Angeles 1984.
Hermann keppir í dag og mætir Waleed Hanfi frá Katar í 1. umferðinni. Þeir Kristján og Eyjólfur hefja síðan keppni á morgun.
gummih@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






