Nadal og Vlasic best hjá AIPS

Tennismaðurinn Rafael Nadal frá Spáni. stækka

Tennismaðurinn Rafael Nadal frá Spáni. Reuters

Tennismaðurinn Rafael Nadal frá Spáni og Blanka Vlasic, hástökkvari frá Króatíu voru valin íþróttamenn ársins af alþjóða samtökum íþróttafréttamanna, AIPS.

Nadal er efstur á heimslista tenniskarla um þessar mundir eftir að hafa unnið þrjú af fjórum stærstu mótum ársins í tennisheiminum. Nadal fékk 16,32% atkvæða í kjörinu sem á fimmta þúsund íþróttafréttamenn tóku þátt í frá 93 löndum.  Annar varð Lionel Messi knattspyrnumaður hjá Barcelona með 14,97% og Andrés Iniesta samherji Messi hjá Barcelona varð þriðji.

Vlasic hafði yfirburði í hástökki kvenna á þessu ári. Hún vann 18 af þeim 20 mótum sem hún tók þátt í og varð Evrópumeistari í hástökki utandyra og heimsmeistari í hástökki innandyra.  Vlasic fékk 19,76% atkvæða í kjörinu. Skíðakonan Lindsay Vonn varð önnur með 15.25% atkvæða og þriðja sætið kom í hlut tenniskonunnar Kim Clijsters frá Belgíu.

Félagsmenn AIPS völdu spænska landsliðið í knattspyrnu karla lið ársins. Fékk það yfir 40% atkvæða. Kanadíska íshokkí landsliðið varð í öðru sæti og blaklandslið Brasilíu í karlaflokki hreppti þriðja sætið. 

Best heppnaði íþróttaviðburður ársins var að mati félagsmanna AIPS heimsmeistaramótið í knattspyrnu karla í Suður Afríku, Þar á eftir komu Vetrarólympíuleikarnir í Kanada og Wimbledon-mótið í tennis var í þriðja sæti.

Blanka Vlasic, hástökkvari frá Króatíu.

Blanka Vlasic, hástökkvari frá Króatíu. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is