Víkingar deildameistarar í borðtennis

Sigurlið Víkings með bikarinn í kvöld. stækka

Sigurlið Víkings með bikarinn í kvöld.

Víkingur tryggði sér í kvöld deildameistaratitili karla í borðtennis þegar þeir unnu KR 4:2 í Frostaskjólinu. Víkingar eru með fullt hús stiga og hafa unnið alla tíu leiki sína.

Lið Víkings skipa þeir Magnús K. Magnússon, Magnús F. Magnússon og Daði F. Guðmundsson en lið KR skipa Kári Mímisson, Davíð Jónsson og hinn þrautreyndi Kjartan Briem.

Bæði liðin eru komin í úrslitakeppnina en ekki er útséð um hvaða tvö lið fylgja þeim þangað. Í úrslitakeppninni er leikin hefbundin undanúrslit fjögurra liða.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is