Auðveldur sigur Rögnu í Guatemala

Ragna Ingólfsdóttir var í stuði i kvöld. stækka

Ragna Ingólfsdóttir var í stuði i kvöld. mbl.is/Sigurgeir S.

Ragna Ingólfsdóttir fór furðu létt með andstæðing sinn, Maju Tvrdy frá Slóveníu, í 1. umferðinni á alþjóðlega badmintonmótinu sem hófst í Mið-Ameríkuríkinu Guatemala í kvöld.

Ragna er í 64. sæti heimslistans og Tvrdy í 65. sætinu og því var búist við hörkuleik. Ragna burstaði hinsvegar þá slóvensku, 21:5, í fyrstu lotunni og fylgdi því eftir með öruggum sigri, 21:14, í annarri lotu. Þar með var sú viðureign á enda.

Ragna keppir aftur á morgun við Claudiu Mayer frá Austurríki sem komst einnig áfram í 1. umferðinni í kvöld. Mayer er í 114. sæti heimslistans og vann Alejöndru Monteverde frá Perú, sem er númer 105 á listanum, 21:18 og 21:13.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is