Sagðist fyrir 20 árum ætla að verða sá besti í heimi
Serbinn Novak Djokovic er besti tenniskappi veraldar um þessar mundir. Það sýndi hann og sannaði með því að leggja Spánverjann Rafael Nadal að velli í úrslitum á opna bandaríska meistaramótinu.
Í leik sem stóð yfir í á fimmtu klukkustund fagnaði hinn 24 ára gamli Djokovic sigri, 6:2, 6:4, 6:7 og 6:1, og vann þar með þriðja risamót sitt á árinu en áður hafði hann borið sigur úr býtum á opna ástralska mótinu og Wimbledon mótinu. Serbinn hefur unnið 64 leiki af þeim 66 sem hann hefur spilað á árinu. Magnaður árangur!
Á bara eftir að vinna franska mótið
Eina stórmótið sem Djokovic náði ekki að vinna á árinu var opna franska mótið en þar þurfti hann að lúta í lægra haldi fyrir Svisslendingnum Roger Federer í undanúrslitum. Sá síðasti hins vegar til að vinna öll fjögur risamótin á sama árinu er Nadal, en það afrekaði hann í fyrra og varð þar með sá sjöundi í röðinni sem tekst það. Nadal hafði betur í úrslitum á móti Djokovic á opna bandaríska mótinu í fyrra en nú náði Serbinn hefndum.
Auk þess að hafa unnið þrjú risamót á árinu hefur Djokovic fagnað sigri á sjö öðrum mótum og það undirstrikar að hann er fremstur á meðal jafningja í þessari skemmtilegu íþrótt.
Nánar er fjallað um Djokovic í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






