Íþróttir
| mbl
| 15.9.2011
| 20:49
Ragna tapaði í hörkuleik
Ragna Ingólfsdóttir féll í kvöld út í 16 manna úrslitunum á alþjóðlega badmintonmótinu í Gvatemala þegar hún beið lægri hlut fyrir Claudiu Mayer frá Austurríki.
Mayer vann í tvígang með minnsta mun, 21:19, og er því komin áfram. Hún er í 114. sæti heimslistans en Ragna er í 64. sætinu og ósigur Rögnu kemur því nokkuð á óvart.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






