Sergei tilbúinn í landslið Íslands
Sergei Zak, fyrrverandi þjálfari Bjarnarins, hefur ákveðið að taka fram skautana og leika með liðinu á Íslandsmótinu í íshokkí í vetur. Zak er 34 ára gamall og lék síðast af fullum krafti með Birninum fyrir tveimur árum. Sergei er afar öflugur leikmaður og hefur mikla reynslu.
Sergei er öllum hnútum kunnugur í Grafarvoginum enda hefur hann verið í herbúðum félagsins síðan 2001 og er í dag framkvæmdastjóri og yfirþjálfari Bjarnarins. „Ég er búinn að ákveða að vera með í vetur. Ég er í góðu formi og hef alltaf haldið mér í góðu formi hvort sem ég hef spilað eða ekki. Maður þarf líka að vera í formi þegar maður er að þjálfa og sýna krökkum æfingar svo dæmi sé tekið,“ sagði Sergei þegar Morgunblaðið hafði samband við hann.
Nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






