Æfingafélagi Jakobs besti sundmaður Evrópu

Jakob Jóhann Sveinsson æfir með besta sundmanni heims á Spáni. stækka

Jakob Jóhann Sveinsson æfir með besta sundmanni heims á Spáni. mbl.is/Eggert

Evrópska sundsambandið útnefndi í gær Norðmanninn Alexander Dale Oen sundmann ársins í Evrópu árið 2011. Dale Oen sem keppir fyrir hönd Vestkantsvømmerne sundfélagsins fékk tæp 32% atkvæða í kjörinu. Camille Lacourt frá Frakklandi var annar með tæp 29% atkvæða.

Alexander Dale Oen vann til gullverðlauna á heimsmeistaramótinu í Sjanghæ á árinu í 100 metra bringusundi.

Norðmaðurinn er nú ásamt Jakobi Jóhanni Sveinssyni við æfingar á Spáni, nánar tiltekið Sierra Nevada. Þar æfa þeir við erfiðar aðstæður og þunnt loftslag til að ná sem mestu út úr æfingunum. Jakob segir á fésbókarsíðu sinni að hann sé rétt núna eða viku eftir að hann kom að venjast loftslaginu. Áður hafði hausverkur verið að plaga kappann sem er nú hinn hressasti.

Jakob mælir eindregið með staðnum. „Aðstæðurnar hérna eru rosalega flottar fyrir margar íþróttagreinar.“

Þá var Federica Pellegrini frá Ítalíu valin sundkona ársins í Evrópu með miklum yfirburðum eða tæpum 63% atkvæða. Pellegrini vann bæði 200 og 400 metra skriðsund í Sjanghæ.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is