Íþróttir
| mbl
| 25.1.2012
| 11:47
| Uppfært
14:13
Djokovic í undanúrslit og mætir Murray
Serbinn Novak Djokovic er kominn í undanúrslit á opna ástralska meistaramótinu í tennis en hann á titil að verja á mótinu. Djokovic átti ekki í vandræðum með að leggja Spánverjann David Ferrer að velli en Serbinn vann í þremur settum, 6:4, 7:6 og 6:1.
Í undanúrslitunum mætir Djokovic Bretanum Andy Murray og í hinni undanúrslitaviðureigninni eigast við Spánverjinn Rafael Nadal og Svisslendingurinn Roger Federer, sem stefnir á að vinna mótið í fimmta sinn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






