Nadal í úrslit eftir enn einn sigurinn á Federer

Rafael Nadal í leiknum gegn Federer í dag. stækka

Rafael Nadal í leiknum gegn Federer í dag. Reuters

Spánverjinn Rafael Nadal var rétt í þessu að tryggja sér sæti í úrslitum á ástralska meistaramótinu í tennis í Melbourne. Nadal hafði betur gegn Svisslendingnum Roger Federer með þremur settum gegn einu, 6:7, 6:2, 7:6 og 6:4.

Nadal hefur haft gott tak á Federer en Svisslendingurinn hefur tapað átta af 10 viðureignum þeirra á stórmótum. Hann fagnaði síðast sigri gegn Nadal á Wimbledon mótinu árið 2007.

Nadal mætir annað hvort Serbanum Novak Djokovic eða Bretanum Andy Murray í úrslitum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is