Íþróttir
| mbl
| 27.1.2012
| 13:45
Djokovic mætir Nadal í úrslitum
Serbinn Novak Djokovic, efsti maður á heimslistanum í tennis, var rétt í þessu að tryggja sér sæti í úrslitum á opna ástralska meistaramótinu þar sem hann á titil að verja.
Djokvic hafði betur gegn Bretanum Andy Murray í hörkuleik með þremur settum gegn tveimur, 6:3, 3:6, 6:7, 6:1 og 7:5.
Það verða því Djokovic og Spánverjinn Rafael Nadal sem leika til úrslita og fer leikurinn fram á sunnudaginn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






