Azarenka vann og er kominn í toppsæti heimslistans

Victoria Azarenka smellir koss á bikarinn. stækka

Victoria Azarenka smellir koss á bikarinn. Reuters

Victoria Azarenka, 22 ára gömul stúlka frá Hvíta-Rússlandi, stóð uppi sem sigurvegari í einliðaleik kvenna á opna ástralska meistaramótinu í tennis í dag.

Azarenka mætti Mariu Sharapovu frá Rússlandi í úrslitaleik í Melborurne og vann öruggan sigur í tveimur settum, 6:3 og 6:0, í leik sem stóð yfir í eina klukkustund og 22 mínútur.

Með sigrinum komst Azarenka í toppsæti heimlistans en hún tekur toppsætið af Caroline Wozniacki frá Danmörku.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is