Dagný var hætt í handboltanum

Dagný Skúladóttir. stækka

Dagný Skúladóttir. mbl.is/Ómar

„Liðsfélagarnir eiga sinn þátt í því að ég fékk þessi verðlaun. Ég er með góða leikmenn við hliðina á mér og snjallan markmann fyrir aftan. Ég hefði aldrei fengið þessi verðlaun ef ég væri ekki í flottu liði,“ sagði landsliðskonan Dagný Skúladóttir úr Val af hógværð í samtali við Morgunblaðið í gær en hún var valin besti leikmaður umferða 1-9 í N1-deild kvenna í handknattleik.

Dagný er nokkuð sátt við spilamennskuna hjá Íslandsmeisturunum. „Framan af mótinu spiluðum við mjög vel en svo kom smá bakslag hjá okkur og við töpuðum einum leik á móti Fram. Á heildina litið erum við bara sátt við að vera á toppnum með Fram. Það hefur ekkert komið okkur á óvart í sjálfu sér og við vissum auðvitað að við færum ekki taplausar í gegnum Íslandsmótið.“

Sjá lengra viðtal við Dagnýju í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is