Falla metin í Höllinni?

Hafdís SIgurðardóttir, fyrir miðju, verður á meðal keppenda. stækka

Hafdís SIgurðardóttir, fyrir miðju, verður á meðal keppenda. mbl.is

Frjálsíþróttafólk verður í eldlínunni í Laugardalshöllinni alla helgina en ÍR-ingar halda sitt árlega stórmót og er þetta í 16. sinn það er haldið. Mótið er langstærsta opna innanhússmótið frjálsum sem haldið er árlega hér á landi. Keppt er í aldursflokkum frá 8 ára og yngri upp í karla og kvennaflokk.

Keppendur verða nálægt 800 og koma frá 23 félögum víðs vegar um landið og þá senda Færeyingar keppendur til leiks en áætlað er að þeir verði um 40 talsins.

Mjög fjölskylduvænt

„Þetta mót er alltaf að verða stærra og stærra hjá okkur. Mótið er mjög fölskylduvænt og ef ég tala fyrir okkur ÍR-inga þá eru foreldrar að koma og starfa og taka þátt í þessu af lífi og sál með börnunum sem er alveg frábært,“ sagði Fríða Rún Þórðardóttir, varaformaður frjálsíþróttadeildar ÍR og keppniskona til margra ára, við Morgunblaðið í gær.

Margt af besta frjálsíþróttafólki landsins verður á meðal keppenda og má fastlega búast við að einhver Íslandsmet falli á mótinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is