Bergur til Svíþjóðar?
FH-ingurinn Bergur Ingi Pétursson, Íslandsmethafi í sleggjukasti, leggur nú drög að því að flytjast tímabundið til Svíþjóðar. Bergur hefur sett stefnuna á að gera atlögu að ólympíulágmarkinu í greininni og hefur hug á því að einbeita sér að æfingum og keppni á árinu.
„Ég ætla að reyna að komast til Svíþjóðar og hefja þar æfingar á fullu. Vonandi kemst ég í keppnisform til þess að ná lágmarkinu fyrir Ólympíuleikana. Ef mér tekst að fjármagna dæmið mun ég fara sem fyrst og það væri draumur að komast strax út í næstu viku,“ sagði Bergur í samtali við Morgunblaðið í gær
Ef áætlanir hans ganga eftir mun hann dvelja í bænum Växjö í suðurhluta Svíþjóðar, en þar er sjöþrautarkonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir einnig búsett og stundar æfingar.
Bergur kemur þá til með að æfa undir handleiðslu sænska þjálfarans Pers Karlssons sem er fyrrverandi sleggjukastari og á best 75,78 metra. „Þetta lítur allt saman ansi vel út og það er bara spurning hvort peningamálin gangi upp,“ sagði Bergur ennfremur.






