Björninn verður sterkari

Frá leik Bjarnarins og SR. stækka

Frá leik Bjarnarins og SR. mbl.is/Árni Sæberg

Skautafélagið Björninn mun tefla fram öflugu liði á lokaspretti Íslandsmóts karla í íshokkí. Þrír fyrrverandi leikmenn liðsins höfðu félagaskipti yfir í Björninn frá Amager í Danmörku daginn áður en félagaskiptaglugginn lokaði 1. febrúar. Um er að ræða landsliðsmennina, Gunnar Guðmundsson, Róbert Frey Pálsson og Úlfar Jón Andrésson.

Allir voru þeir í herbúðum félagsins á síðasta keppnistímabili en héldu til Danmerkur síðastliðið sumar. Gengu þeir til liðs við Amager í dönsku B-deildinni en liðinu var þá stjórnað af Olaf Eller landsliðsþjálfara Íslands. Eller tók hins vegar við úrvalsdeildarliði Esbjerg á miðju keppnistímabili. Hinir þrír Íslendingarnir hjá Amager, Jón B. Gíslason, Jónas Breki Magnússon og Brynjar Þórðarson munu leika með Amager út tímabilið.

Karlalið Bjarnarins hefur aldrei orðið Íslandsmeistari en ætti nú að geta gert atlögu að titlinum. Eins og sakir standa eru mestar líkur á því að Skautafélag Reykjavíkur og Björninn leiki til úrslita um titilinn. Gunnar, Róbert og Úlfar gætu spilað sinn fyrsta leik þegar þessi félög mætast í deildinni á þriðjudagskvöldið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is