Brotið hjá Ovechkin (myndskeið)
Rússinn Alexander Ovechkin, ein skærasta stjarna NHL-deildarinnar í íshokkí var á dögunum dæmdur í þriggja leikja bann eins og fram hefur komið.
Ovechkin var dæmdur í bann vegna brots sem átti sér stað í leik gegn Pittsburgh Penquins en Ovechkin leikur með Washington Capitals.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði er brotið ljótt þar sem Ovechkin hoppar upp og fer með öxlina í höfuðið á andstæðingnum en annars hefði andstæðingurinn fengið höggið í skrokkinn. Auk þess er andstæðingurinn löngu búinn að senda pökkinn frá sér en í íshokkí er leyfilegt að skauta inn í andstæðinginn af afli ef hann er með pökkinn.
Mikil umræða hefur átt sér stað vestan hafs að undanförnu um höfuðmeiðsli í íþróttum en stórstjarnan Sidney Crosby hefur lítið leikið með Pittsburgh í NHL í rúmt ár vegna höfuðmeiðsla.






