Íþróttir
| mbl
| 3.2.2012
| 11:46
| Uppfært
19:55
ÍR-ingar hlaupa á Spáni
ÍR-ingar taka þátt í Evrópukeppni félagsliða í víðavangshlaupum sem fram fer í Castellon á Spáni á sunnudaginn en þeir unnu sér þátttökurétt þar með því að verða Íslandsmeistarar félagsliða 2011.
Lið ÍR skipa þeir Reynir Bjarni Egilsson, Arnar Pétursson, Þorbergur Ingi Jónsson og Tómas Zoega.
Alls taka 40 lið þátt í karlaflokki, hvaðanæva að úr Evrópu, en samtals eru um 370 keppendur skráðir til leiks á mótinu, í karla-, kvenna- og unglingaflokkum. Karlarnir hlaupa 10 kílómetra, konur og piltar 6 kílómetra og stúlkur 4 kílómetra.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






