Giants þykir sigurstranglegra

Tom Brady stækka

Tom Brady Reuters

Morgunblaðið Gunnar Valgeirsson í Los Angeles, gval@mbl.is

Ofurskálarleikur 46 í NFL-ruðningsdeildinni fer fram á morgun á Lucas Oil-leikvanginum í Indianapolis. Það verða New York Giants, sem komu mjög á óvart í úrslitakeppni Landsdeildar, og New England Patriots sem keppa um meistaratitilinn í ár.

New England var á toppi Ameríkudeildarinnar alla deildakeppnina, en liðið var heppið að sigra Baltimore Ravens, 23:20, í undarnúrslitunum fyrir 13 dögum á heimvelli sínum. Í þeim leik fékk Baltimore tvívegis tækifæri til að vinna leikinn á síðustu mínútunni, en enginn spyr að leikslokum þegar heppnin er hans megin. Í þeim leik lék Tom Brady, leikstjórnandi og stórstjarna Patriots, afleitan leik og hann mun nú verða lykilmaðurinn ef Patriots ætla sér að vinna fjórða titil sinn.

Grein Gunnars er að finna í heild sinni í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is