Helga Margrét best í kúluvarpi

Helga Margrét stóð sig vel í kúluvarpinu. stækka

Helga Margrét stóð sig vel í kúluvarpinu. mbl.is/Kristinn

Helga Margrét Þorsteinsdóttir frjálsíþróttakona úr Ármanni náði bestum árangri keppenda í kúluvarpi, þriðju greininni í fimmtarþraut á alþjóðlega mótinu í Tallinn í Eistlandi sem nú stendur yfir.

Helga Margrét varpaði kúlunni 14,74 metra sem er nálægt hennar besta árangri en hún á best 15,01 metra. Þegar hún setti Íslandsmet sitt 2010 varpaði hún kúlunni 13,68 metra og hefur því bætt sig um rúman metra síðan þá.

Helga Margrét fékk 843 stig fyrir kúluvarpið og er þar með orðin efst í heildarstigakeppninni með 2.650 stig, 28 stigum meira en Laura Ikauniece frá Lettlandi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is