Helga Margrét niður í 2. sæti

Helga Margrét stökk 5,59 metra í langstökkinu. stækka

Helga Margrét stökk 5,59 metra í langstökkinu. mbl.is/Ómar

Frjálsíþróttakonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir fór úr efsta sætinu niður í það næstefsta eftir langstökkskeppnina sem var fjórða og næstsíðasta greinin í fimmtarþrautinni á alþjóðlega mótinu í Tallinn í Eistlandi.

Helga Margrét stökk lengst 5,59 metra í þriðju og síðustu tilraun og fékk fyrir það 726 stig. Hún hefur lengst stokkið 5,92 metra en stökk 5,63 metra þegar hún setti Íslandsmet sitt 2010.

Helga Margrét er nú með 3.376 stig, 96 stigum á eftir Lauru Ikauniece frá Lettlandi sem er efst í mótinu.

Lokagrein dagsins er 800 metra hlaup sem hefst kl. 15:30.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is