Íþróttir
| mbl
| 4.2.2012
| 13:54
Lindsey Vonn náði stórum áfanga
Bandaríska skíðadrottningin Lindsey Vonn náði mögnuðum áfanga í skíðabrekkunum í Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi í dag þegar hún sigraði á heimsbikarmóti í bruni.
Var þetta hennar fimmtugasti sigur í heimsbikarnum á ferlinum. Hún hefur auk þess unnið tuttugu og fimm heimsbikarmót í bruni sem er met.
Vonn sagði í samtali við blaðamenn að sigrinum loknum að hún hafi oft skíðað betur en það væri sérstakur áfangi að ná fimmtugasta sigrinum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






