Þróttur lenti 2:0 undir en vann

Fjóla Rut Svavarsdóttir og stöllur í Þrótti R. unnu í dag. stækka

Fjóla Rut Svavarsdóttir og stöllur í Þrótti R. unnu í dag. mbl.is/Þórir Ó. Tryggvason

Þróttur Reykjavík vann í dag 3:2-sigur á Ými í hörkuleik í Kópavogi í Mikasadeild kvenna í blaki. Ýmir vann fyrstu tvær hrinur leiksins en gestirnir náðu að snúa leiknum sér í vil.

Ýmir vann fyrstu hrinurnar 25:22 og 25:21 en þá svöruðu Þróttarar með því að vinna 25:15 og 25:17, og loks 15:12 í oddahrinunni.

Þróttur styrki stöðu sína í 3. sæti deildarinnar og er þar með 13 stig en Ýmir fékk eitt stig úr leiknum og komst upp fyrir Þrótt Neskaupstað í 4. sætið með 10 stig.

Stigahæstu leikmenn í liði Þróttar R voru Fjóla Rut Svavarsdóttir með 25 stig en Hildigunnur Magnúsdóttir skoraði 14 stig. Í liði Ýmis var Birna Hallsdóttir stigahæst með 14 stig en Rasa Ratkuté og Inga Lillý Brynjólfsdóttir skoruðu 12 stig hvor fyrir Ými.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is