Íþróttir
| mbl
| 5.2.2012
| 15:41
| Uppfært
16:30
BH Keppnis meistarar í B-deild
TBR-Hrafnarnir, TBR-Þrumuguðirnir og BH-Keppnis öttu kappi í riðli um 1. - 3. sætið í B-deild í úrslitakeppni deildakeppni Badmintonsambands Íslands. BH-Keppnis stóðu uppi sem sigurvegarar og eru því Íslandsmeistarar liða í B-deild. Í öðru sæti urðu TBR-Þrumuguðirnir og TBR-Hrafnarnir í því þriðja.
Liðin unnu öll sína riðla en BH-Keppnis vann bæði TBR-Hrafnana og Þrumuguðina en Þrumuguðirnir unnu svo Hrafnana í úrslitinum. Úrslit í A-deild og meistaradeild eru að hefjast þegar þetta er skrifað.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






