TBR A-landsliðið Deildameistari
Keppni í Deildakeppni Badmintonsambands Íslands lauk í dag en þar hafði TBR A-landsliðið sigur í meistaradeildinni með fullt hús stiga. A-landsliðið vann í öllum sínum viðureignum og var fyrir ofan TBR-Öllara 1 sem hafnaði í 2. sæti.
Með því vann TBR A-landsliðið sér inn þátttökurétt á Evrópumóti félagsliða sem haldið verður í sumar. Liðið skipa Atli og Helgi Jóhannessynir, Kári Gunnarsson, Magnús Ingi Helgason, Róbert Þór Henn, Karitas Ósk Ólafsdóttir, Ragna Ingólfsdóttir, Rakel Jóhannesdóttir og Snjólaug Jóhannsdóttir.
TBR-Félagsliðið hafnaði í þriðja sæti, ÍA í fjórða sæti, Pressuliðið í fimmta sæti og BH rak lestina í meistaradeildinni.
BH-K liðið eru Íslandsmeistarar í A-deild eftir sigur í úrslitaleik á TBR-Öllurum sem höfnuðu því í 2. sæti. TBR-Geitungar og TBR-Ásarnir urðu í 3. - 4. sæti í A-deildinni.







