Íþróttir
| mbl
| 6.2.2012
| 7:04
| Uppfært
19:10
Giants hreppti Ofurskálina
New York Giants lagði New England Patriots að velli, 21:17, í úrslitaleiknum um Ofurskálina í bandaríska ruðningnum sem fram fór í Indianapolis í nótt.
Giants komst í 9:0 en Patriots var hinsvegar komið í 17:9 að loknum þriðja leikhluta.
Tom Brady átti möguleika á að tryggja Patriots sigurinn á lokamínútunni en vörn Giants náði að stöðva sendingu frá Tom Brady og þar með voru úrslitin ráðin.
Eli Manning, leikstjórnandi Giants, var valinn maður leiksins en sending hans á Mario Manningham fjórum mínútum fyrir leikslok réð úrslitum þegar upp var staðið. Manningham sýndi ótrúleg tilþrif þegar hann náði að grípa boltann við endalínuna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






