„Þrautin mikilvægari“

Sveinbjörg Zophoníasdóttir mundar kúluna í Laugardalshöllinni. stækka

Sveinbjörg Zophoníasdóttir mundar kúluna í Laugardalshöllinni. Kristinn Ingvarsson

Morgunblaðið Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.is

Meistaramót 15 – 22 ára í frjálsum íþróttum fór fram um helgina í frjálsíþróttahöllinni í Laugardalnum. Engin aldursflokkamet féllu en keppt var í fjórum flokkum, 15 ára, 16-17 ára, 18-19 ára og 20-22 ára. Keppendur voru alls 242 frá 18 liðum.

Þrautarkonan Sveinbjörg Zophoníasdóttir sem keppir fyrir FH varð um helgina þrefaldur Íslandsmeistari. Hún kastaði lengst í kúluvarpi 12,42 metra, stökk lengst í langstökki 5,90 metra og stökk 1,64 metra í hástökki. Sveinbjörg var nokkuð frá Íslandsmetum í greinunum enda það ekki hennar helsta markmið.

„Þetta gekk mjög vel. Ég er að stefna á sjöþraut og var þetta fínn árangur ef miðað er við það. Ég er ekki að hugsa eins mikið um Íslandsmetin heldur enn frekar um stigin í þraut. Maður þarf að vera jafn og góður í gegnum þær greinar. Þessi árangur um helgina er því jákvæður í því samhengi.“

Nánar um mótið í átta síðna íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is