Aðalheiður keppir í Aserbaídsjan

Aðalheiður Rósa Harðardóttir. stækka

Aðalheiður Rósa Harðardóttir. mbl.is

Aðalheiður Rósa Harðardóttir, landsliðskona í karate úr Breiðabliki, er farin til Aserbaídsjan en þar keppir hún á Evrópumeistaramótinu fyrir 21-árs og yngri sem hefst í Baku á föstudaginn.

Aðalheiður keppir í kata á föstudaginn en þar hafa einungis landsmeistarar keppnisrétt. Í fréttatilkynningu frá Karatesambandi Íslands segir að Aðalheiður, sem hefur náð góðum árangri á mótum erlendis, hafi æft stíft hjá landsliðsþjálfaranum Magnúsi Kr. Eyjólfssyni að undanförnu og hann sé bjartsýnn á góðan árangur hennar í Baku.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Sunnudaginn 27. maí


finnur.is