Ævar: Erum eiginlega komnir í lykilstöðu
Ævar Þór Björnsson, markvörður SR, átti góðan leik þegar SR sigraði Björninn 5:3 í Skautahöllinni í Laugardal í kvöld og kom sér í góða stöðu í deildinni.
Ævar hélt marki sínu hreinu bæði í fyrsta og síðasta leikhlutanum en öll mörk Bjarnarins komu í öðrum leikhluta. Ævar kom auk þess í veg fyrir að Björninn næði tveggja marka forskoti í öðrum leikhluta þegar hann varði frábærlega frá Brynjari Bergmann sem slapp einn inn fyrir vörn SR.
Ævar sagði SR-inga ekki hafa skautað eins og menn framan af leiknum en hafa átt nóg eftir í síðasta leikhlutanum en Bjarnarmenn hefðu líklega verið sprungnir á síðustu mínútunum.
Ævar benti á að „Power play“ SR-inga hefði verið í góðu lagi en þar er átt við þá stöðu þegar lið er manni yfir á ísnum. SR skoraði þrjú mörk af fimm við slíkar aðstæður í kvöld.
Fjallað er um leik SR og Bjarnarins í íþróttablaði Morgunblaðsins í fyrramálið






